Reykjanesfólkvangur
Gönguleiðir í Reykjanesfólkvangi eru við allra hæfi og rétt að láta hugmyndaflug, getu hvers og eins og aðstæður stjórna för. Möguleikarnir til að stunda útivist og náttúruskoðun í næsta nágrenni helsta þéttbýliskjarna landsins eru einstakir. Hér eru nokkur dæmi fyrir þá sem vilja komast í snertingu við sögu- og náttúruminjar, hugleiða aldalanga búsetu þjóðarinnar í stórbrotnu landi, rýna í fjölskrúðugt gróðurfar eða stunda holla hreyfingu. Það er hægt að stefna á hæstu tinda til að njóta útsýnis og reyna á sig, eða taka því rólega og ganga um fáfarnar slóðir og gæta að hinu smáa í náttúrunni.
Reykjavegur er 114 km löng leið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum við Þingvallavatn. Gönguleiðinni er skipt í 7 áfanga sem eru 13-20 km langir hver og þægilegar dagleiðir. Tæpur helmingur Reykjavegar liggur innan Reykjanesfólkvangs og það er auðvelt að ganga þessa leið með því að fylgja gulum og bláum stikum sem vísa veginn. Fólki er ráðlagt að búa sig vel og hafa með sér landakort, áttavita, staðsetningartæki, gott nesti og nægt drykkjarvatn til ferðarinnar. Þrír áfangar eru að mestu innan marka fólkvangsins. Þriðji áfangi liggur frá Djúpadal að Núpshlíðarhálsi þar sem gömlu þjóðleiðinni um Selsvelli er fylgt í áttina að Soginu sem er litfagurt jarðhitasvæði. Þar er farið yfir hálsinn að Lækjavöllum við Djúpavatn. Fjórði áfangi liggur frá Lækjarvöllum að Hrútafelli í Móhálsadal, í áttina að Hrútagjárdyngju og Fjallinu eina. Síðan er gömlu Undirhlíðaleiðinni fylgt að Kaldárseli. Fjórði áfangi þræðir Selvogsgötu frá Kaldárseli í áttina að Grindaskörðum. Þegar komið er upp Kerlingaskarð er haldið austur að skíðaskálanum í Bláfjöllum, sem er utan við fólkvanginn.
Gamlar þjóðleiðir og fornir stígar liggja vítt og breitt um Reykjanesfólkvang. Þessar leiðir hafa gleymst eftir að ökuvegir voru lagðir og menn hættu að þræða gamlar slóðir á ferð sinni um nesið. Flestar leiðirnar tengja byggðahverfin gömlu við útverin á Suðurnesjum. Á milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur lágu t.d. Undirhlíðaleið, Dalaleið, Vatnaleið, Stórhöfðastígur og Hrauntungustígur. Frá Hraunabæjunum við Straumsvík og Hvassahrauni lágu Straumsselsstígur, Rauðamelsstígur og Mosastígur til Krýsuvíkur, að Selatöngum eða Grindavíkur. Með Núpshlíðarhálsi lágu Hálsagötur og milli Vatnsleysustrandar og Vigdísarvalla lá Þórustaðastígur, sem nefnist Drumbsdalastígur þar sem hann þræðir sig frá völlunum austur að Krýsuvík. Fleiri leiðir mætti nefna, en göngufólki er ráðlagt að rýna ofan í svörðinn og skoða gamlar götur sem víða mótar fyrir þó þær séu ekki jafn augljósar og fyrrum.
Hér fylgja um 30 leiðalýsingar og kort á PDF útgáfu fyrir hin ýmsu svæði fólkvangsins. Þeim sem hyggja á gönguferðir bendum við á að opna skjölin og prenta þau út í handhægu formi áður en farið er af stað. Kortin eru ekki í ákveðnum stærðarhlutföllum, heldur spanna ákveðin landsvæði. Best er að hafa með sér stærri kort í ákveðnum stærðarhlutföllum til hliðsjónar þegar haldið er af stað í gönguferðir um Reykjanesfólkvang.
Leiðalýsingarnar eiga að auðvelda fólki að njóta þeirrar fjölbreytni sem Reykjanesfólkvangur býður upp á sem gönguland. Áætlaður göngutími er aðeins til viðmiðunar, enda skal ætíð taka mið af aðstæðum og getu þegar lagt er af stað í göngu. Þær leiðir sem lýsingarnar eiga við eru sýndar á kortinu en það er kjörið að bæta fleiri leiðum við því möguleikarnir eru óþrjótandi.
Góða ferð og njótið útiverunnar í heillandi landslagi.
Göngukort nr.1
Göngukort nr.2
Göngukort nr.3
Göngukort nr.4
Göngukort nr.5
Leiðarlýsing nr. 1 (.pdf skjal 2,1MB)
Leiðarlýsing nr. 2 (.pdf skjal 2,3 MB)
Leiðarlýsing nr. 3 (.pdf skjal 2,2 MB)
Leiðarlýsing nr. 4 (.pdf skjal 1,7 MB)
Leiðarlýsing nr. 5 (.pdf skjal 2,1MB)
Sækja Acrobat reader (Frítt forrit sem getur opnað .pdf skjöl)
|