Náttúruvernd

Í friðlýsingu felst, að öllum er frjálst að fara um og dvelja á svæðinu nema þar sem er girt vatnsból og ræktað land. Virða skal reglur um góða umgengni og umferð.  

Umgengnisreglur

-ökum ekki utan merktra vega

-hlífum gróðri

-sýnum dýrunum nærgætni

-kveikjum ekki elda

-hirðum rusl og úrgang

-hlöðum ekki vörður

-letrum ekki á náttúrumyndanir 

-göngum vel um hveri og laugar

-rífum ekki upp mosa eða hellur

-göngum snyrtilega um tjaldstæðin

-sleppum hestum ekki lausum

 

Samgöngur

Helstu akvegir um fólkvanginn eru Krýsuvíkurvegur úr Vatnsskarði suður með Kleifarvatni að Krýsuvík og áfram austur í Selvog. Einnig má nefna Nesveg, sem er þjóðvegurinn milli Krýsuvíkur og Grindavíkur og Bláfjallaveg af Krýsuvíkurvegi við Óbrynnishóla og norður á Suðurlandsveg. Vegur fær fólksbílum að sumarlagi liggur frá Vatnsskarði að Djúpavatni og áfram suður um Vigdísarvelli og á Nesveg. Opnast þannig hringleið um suðurhluta fólkvangsins.

Vegagerdin